Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 83. máls.

Þskj. 95  —  83. mál.



Frumvarp til laga

um breytingu á lögum nr. 35/2009,
um náms- og starfsráðgjafa.

(Lagt fyrir Alþingi á 137. löggjafarþingi 2009.)




1. gr.

    Við 4. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
    Ráðherra er heimilt að fela háskólum, sem hlotið hafa viðurkenningu á grundvelli laga um háskóla og sinna menntun náms- og starfsráðgjafa eftir samningi við ráðuneytið, að annast útgáfu leyfisbréfa samkvæmt lögum þessum. Ráðherra getur enn fremur veitt öðrum þar til bærum aðila slíka heimild.
    Ráðherra er heimilt að setja nánari fyrirmæli um fyrirkomulag og útgáfu leyfisbréfa í reglugerð.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Með frumvarpinu er lagt til að við 4. gr. laganna verði bætt heimild sambærilegri þeirri sem er að finna í 4. og 5. mgr. 21. gr. laga nr. 87/2008, um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, um að menntamálaráðherra geti falið háskólum, sem hlotið hafa viðurkenningu á grundvelli laga um háskóla og sinna menntun náms- og starfsráðgjafa, að annast útgáfu leyfisbréfa. Með sama hætti er enn fremur lagt til að ráðherra geti falið öðrum til þess bærum aðila að annast útgáfu leyfanna. Með því fyrirkomulagi sem hér er lagt til skapast svigrúm til að auka hagkvæmni og einfalda framkvæmd við útgáfu leyfisbréfa til náms- og starfsráðgjafa. Gert er ráð fyrir að ráðherra setji nánari fyrirmæli um fyrirkomulag og útgáfu leyfisbréfa í reglugerð.



Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 35/2009,
um náms- og starfsráðgjafa.

    Með frumvarpinu er lagt til menntamálaráðherra geti falið háskólum og öðrum sambærilegum aðilum að annast útgáfu leyfisbréfa.
    Verði frumvarpið óbreytt að lögum er ekki gert ráð fyrir að það hafi í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð.